Formúla 1

Button byrjar vel á Spáni

Jenson Button var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða í morgun.
Jenson Button var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða í morgun.

Bretinn Jenson Button á Brawn bíl byrjaði fyrstu æfingu Formúlu 1 liða vel. Hann náði besta tíma og var 0.355 sekúndum á undan Jarno Trulli á Toyota.

Button hefur 12 stiga forskot í stigakeppni ökumanna á Rubens Barrichello, en Sebastian Vettel er þriðji í stigamótinu.

Öll lið hafa gert miklar endurbætur á keppnisbílum sínum fyrir mótið um helgina og mesta athygli vekur að BMW eru með bíla í þriðja og fjórða sæti á fyrstu æfingu, en liðinu hefur ekki gengið vel á árinu. Robert Kubica varð 0.422 á eftir Button.

Felipe Massa á Ferrari varð níundi og er hann fremstur ökumanna hjá stórliðunum tveimur, Ferrari og McLaren. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton var aðeins með fjórtánda besta tíma.

Heimamaðurinn Fernando Alonso á Renault var á eftir Hamilton, en hann sagði í gær að hann bæri engan kala til Hamilton eftir viðureign þeirra innan McLaren liðsins 2007. Þá voru þeir liðsfélagar, en Alonso hætti hjá McLaren eftir eitt ár af þremur.

Sjá nánar um mót helgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×