Innlent

Allir nema sjálfstæðismenn hafa gengið frá tilnefningum

MYND/Stefán

Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa allir flokkar að Sjálfstæðisflokki undanskildum gengið frá því hvaða þingmenn munu sitja í nefndinni sem ætlað er að fjalla um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem skilað verður í lok janúar á nýju ári. Þau Oddný G. Harðardóttir og Magnús Orri Schram munu sitja í nefndinni fyrir hönd Samfylkingar.

Fyrir VG verða í nefndinni Atli Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir og fyrir Framsóknarflokk sitja þau Sigurður Ingi Jóhannsson og Eygló Harðardóttir. Hreyfingin fær einn mann í nefndina og hefur Birgitta Jónsdóttir verið valin til þess. Líklega verður kosið í nefndina á Alþingi fyrir hádegi á morgun.

Það þýðir, samkvæmt frumvarpi um Rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna, að allar ákvarðanir ráðherra frá 30. desember 2006 hætta að fyrnast.


Tengdar fréttir

„Hreyfingin gefur þingmönnum puttann"

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi málflutning þingmanna Hreyfingarinnar í umræðum á Alþingi í dag um þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún sagði Hreyfinguna gefa Alþingi puttann.

Ætla að tilnefna fulltrúa í þingnefndina

Þingflokkur Hreyfingarinnar áformar að tilnefna fulltrúa í þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þrátt fyrir að allar breytingartillögur þingflokksins hafi verið felldar í atkvæðagreiðslu í morgun.

Lög samþykkt um þingmannanefnd

Ekki náðist samstaða á Alþingi um frumvarp forsætisnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslu þegar frumvarpið var samþykkt í morgun.

Þingnefndin er prófsteinn á styrk Alþingis

Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að vinnu þingmannanefndar sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sé prófsteinn á styrk og trúverðugleika þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×