Golf

Tiger tilbúinn í slaginn á Opna bandaríska meistaramótinu

Ómar Þorgeirsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Nordic photos/Getty images

Tiger Woods vonast til þess að verja titil sinn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem hefst í næstu viku en Woods vann þar eftirminnilegan sigur í fyrra þegar hann var meiddur á hné.

Woods fór svo í uppskurð eftir mótið og var frá keppni í um átta mánuði en er allur að komast aftur á skrið.

Hann sneri aftur í febrúar og vann strax á Arnold Palmer-mótinu og um síðustu helgi vann hann Memorial meistaramótið.

„Það er alltaf gott að spila vel stuttu fyrir stórmót eins og Opna bandaríska meistaramótið. Þetta gefur manni mikið sjálfstraust. Það er langur vegur til stefnu samt sem áður," segir Woods.

Woods eltir enn met Jack Nicklaus sem hefur unnið átján stóra titla á ferli sínum en Woods er kominn með fjórtán stóra titla og stefnir á þann fimmtánda í næstu viku.

„Bethpage-völlurinn er langur og erfiður en jafnframt mjög skemmtilegur. Ég hlakka mjög til að takast á við þetta mót," segir Woods.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×