Innlent

Vill að Ríkisendurskoðun taki út störf sín

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson ætlar að fara þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún taki út störf sín sem stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór sendi Fréttastofu Sjónvarpsins í kvöld.

Þar segir Guðlaugur ennfremur að óvönduð umræða og dylgjur um störf sín séu óþolandi og til þess eins að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn í aðdraganda kosninga.

Hann telur mikilvægt að óvilhallur aðili taki út störf sín og vill taka það fram að hann hafi látið af störfum í maí 2007, áður en REI málið svokallaða kom upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×