Formúla 1

Nýr Force India frumsýndur

Giancarlo Fisichella og Adrian Sutil við nýja Force India bílinn.
Giancarlo Fisichella og Adrian Sutil við nýja Force India bílinn.

Formúlu 1 lið Force India frumsýnir nýtt ökutæki sitt á Spáni á sunnudag. En liðið hefur þegar sent frá sér myndir af bílnum sem er hin skrautlegasti og í indversku fánalitunum.

Force India liðið er í eigu miljarðamæringsins Vijay Mallay, en liðið er staðsett við Silverstone brautina í Bretlandi.

Mallay samdi við Mercedes um kaup á vélum og gírkössum í bíla liðsins, sem verið ekið af Adrian Sutil og Giancarlo Fisichella.

Bílnum verður ekið á æfingum á Jerez brautinni á Spáni næstu 4 daga og bíða menn spenntir hvernig hann kemur út með Mercedes vél. Force India var áður með Ferrari vél og gírkassa.

Formleg frumsýning Force India verður á morgun á Jerez brautinni, sunnarlega á Spáni. Þá mun Sutil aka bílnum.

sjá meira um bílinn






Fleiri fréttir

Sjá meira


×