Viðskipti erlent

Vildi kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi

Jon H. Nordbrekken stofnandi og eigandi Bank2 í Noregi reyndi fyrir jól að kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi. Ætlunin var að tæpur tugur af lykilstarfsmönnum miðlunarinnar myndu koma í vinnu hjá Bank2.

Þetta gekk ekki eftir þrátt fyrir að viðkomandi starfsmenn væru jákvæðir gagnvart áformum Bank2. Samkvæmt frásögn á vefsíðunni e24.no strandaði málið á óeiningu milli skilanefndar Landsbankans og Bank2.

Nordbrekken stofnaði Bank2 árið 2005 en um er að ræða fjármálafyrirtæki sem sérhæfir sig m.a. í lánaumsýslu, endurfjármögnun og fyrirtækjalánum.

Bank2 hefur lengi haft áform um að bæta verðbréfamiðlun við starfsemi sína. Þeir reyndu fyrst að kaupa Norse Securities skömmu eftir að Bank2 var stofnað en á endanum var Norse Securities selt Íslandsbanka sem síðar varð Glitnir.

Jon H. Nordbrekken segir í samtali við e24.no að þeir hafi átt í viðræðum við Landsbankamenn til að finna út hvort möguleiki væri á samningi um að Bank2 yfirtæki verðbréfamiðlunina. Þær viðræður hafi verið á jákvæðum nótum til að byrja með.

Aðspurður um hvað hafi á endanum stoppað málið segir Nordbrekkan að það sé nokkuð sem hann vilji ekki tjá sig um.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×