Viðskipti erlent

Líkir bandarískri fjármálastjórn við þá íslensku

Sagnfræðiprófessorinn Paul Kennedy líkir fjármálastjórn Bandaríkjanna við þá íslensku eða illa reikið þriðja heims ríki. Af þessum sökum telur prófessorinn öruggt að efnahagsveldi Bandaríkjanna sé dæmt til að hnigna.

Kennedy, sem er forstjóri alþjóðaöryggismáladeildar Yale háskólans, lætur þessi orð falla í grein sem hann skrifar í The Wall Street Journal.

"Ein af ástæðum þessa er hinn einstaki halli á fjárlögum og vöruskiptum landsins sem líkist náið því sem maður myndi ætla að gerðist á Íslandi eða illa reknu þriðja heims ríki," segir Kennedy m.a. um ástæður þess að veldi Bandaríkjanna á heimsvísu muni dvína í náinni framtíð.

Og Kennedy telur að spár um fjárlagahallann á þessu ári og þeim næstu í Bandaríkjunum séu hrollvekjandi. Fáir þingmenn geri sér grein fyrir alvöru málsins þar sem þeir undirbúa nú risavaxinn stuðing við efnahagslífið. Og enginn er viss um hvort sá stuðningur komi að gagni.

Það er athyglisvert að virtir fræðimenn eins og Kennedy séu farnir að nota fjármálastjórn íslenskra stjórnvalda á undanförnum árum sem skammaryrði í greinum sínum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×