Formúla 1

Barrichello runninn reiðin vegna taps

Barrichello var eldheitur og reiður eftir kappaksturinn í Þýskalandi um síðustu helgi.
Barrichello var eldheitur og reiður eftir kappaksturinn í Þýskalandi um síðustu helgi. mynd: kappakstur.is

Brasilíunaðurinn Rubens Barrichello var æfur út í Brawn liðið eftir kappaksturinn á Nurburgring á sunnudaginn. Taldi að liðið hefði klúðrað málum, þannig að hann tapaðiu af sigurmöguleikanum.

Barrichello var í hörkukeppni við Mark Webber lengi vel, en mistök í þjónustuhléi og önnur keppnisáætlun en önnur lið voru með varð til þess að hann endaði í sjötta sæti.

Barrichello sagði í samtali við BBC á sunnudaginn að honum væri skapi næst að fljúga heim, eftir dæmalaust klúður Brawn manna og var mikið niðri fyrir. Hann sagðist engan áhuga hafa á að talla við tæknimenn liðsins og hlusta á blaður og afsakanir.

"Mér var heitt í hamsi, en ég er kominn yfir það. Ég hefði aldrei getað unnið mótið og Red Bull bílarnir voru hálfri sekúndu fljótari í hring. Þriðja sætið hefði verið möguleiki ef þjónustuhléið hefði ekki klikkað. Ég mun berjast áfram og á möguleika á titlinum. Þetta var erfiður sunnudegur en hann er nú minning ein", sagði Barrichelllo um málið.

Barrichello féll úr öðru sæti í stigamótinu í það fjórða eftir keppni helgarinnar sem Mark Webber vann á Red Bull.

Stigastaðan í Formúlu 1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×