Golf

Misheppnað upphafshögg Murray sendi konu á spítala

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Murray kemst tæplega á PGA-mótaröðina á næstunni.
Murray kemst tæplega á PGA-mótaröðina á næstunni. Nordic Photos/Getty Images

Gamanleikarinn Bill Murray átti líklega eitt versta upphafshögg golfsögunnar í dag. Murray, sem tekur þátt í móti þar sem atvinnumenn og frægt fólk spilar saman, hitti boltann svo illa í upphafshöggi sínu að hann fór af brautinni, yfir götu og inn í garð hjá saklausu fólki.

Vildi ekki betur til en svo að boltinn fór beint í húsmóðirina á heimilinu sem var að fylgjast með mótinu úr garðinum sínum. Hún meiddist svo illa að það þurfti að flytja hana á spítala.

„Ég sá ekki boltann almennilega og vissi ekki hvort hann var inn á braut eður ei. Svo kemur maður á bíl til mín og tjáir mér að ég hafi skotið í konu sem þess utan liggi óvíg eftir. Það er ekki skemmtileg reynsla og ætti að renna af flestum við slík tíðindi," sagði Murray sem fór og hitti konuna á spítalanum.

„Hún var himinlifandi að hitta mig því hún sagðist hafa verið að reyna að sjá mig úr garðinum sínum. Maðurinn hennar var þess utan nýbúinn að óska þess að ég myndi slá boltanum í átt að þeim."

Murray játaði síðar að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem hann hitti áhorfanda við að spila gold.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×