Formúla 1

Pressan ekki Ferrari stjóranum ofviða

Ferrari hefur ekki fengið eins mikla athygli á þessu ári, en Felipe Massa náði þó þriðja sæti í síðustu keppni.
Ferrari hefur ekki fengið eins mikla athygli á þessu ári, en Felipe Massa náði þó þriðja sæti í síðustu keppni.
Stefano Domenicali er ekki að kikna undan álaginu þó Ferrari hafi ekki gengið sem skyldi á þessu keppnistímabili og Red Bull og Brawn berjist um titilinn.

Ferrari, Renault, BMW, McLaren og Toyota stórliðin klikkuðu öll á hönnum 2009 bílsins og sum liðanna hafa sett meiri vigt á næsta ár.

"Ég er búinn að vera í Formúlu 1 í 20 ár og veit að hlutirnir ganga í bylgjum. Það er alltaf pressa á starfsmönnum Ferrrari. Maður verður að taka mótbyr jafn vel og meðbyr. Maður er engin stjarna þó titlar vinnist eður ei. Framkvæmdarstjóri verður að hafa jafnaðargeð, sama á hverju gengur", sagði Domenicali.

Ferrari keppir á brautinni í Ungverjalandi um helgina, en Felipe Massa náði þriðja sæti í síðustu keppni sem var á Nurburgring. Liðið á ekki möguleika í titil bílasmiða eða ökumanna og skoðar á næstunni að setja meiri vinnu í 2010 bílnn en 2009 tækið.

"Við verðum að gæta þess að halda andanum innan liðsins í lagi, þó hlutirnir hafi ekki gengið upp í ár. Það er ekkert neikvætt við að vinna ekki, það er bara reynsla sem menn læra af og eflast", sagði Domenicali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×