Fersk XX byggir á fortíðinni 8. október 2009 04:15 Gríðarlega svöl The XX frá vinstri: Jamie, Baria, Romy og Oliver.
Það er kominn október og tónlistarspekúlantar eru farnir að velta því fyrir sér hvaða plötur verða á listanum yfir plötur ársins. Þar á meðal verður væntanlega fyrsta plata The XX frá London. Hljómsveitin The XX hefur verið að vekja mikla athygli síðustu vikurnar fyrir fyrstu plötuna sína sem heitir einfaldlega XX. Tónlistarlega sækir bandið stíft í fortíðina, greina má áhrif frá nýbylgjuböndum eins og Young Marble Giants, The Slits og The Cure á fyrstu árum sínum, það er síað í gegnum Bristol-bylgjuna frá sirka 1995 og ofur nútímalegt R&B í anda Timbaland. Þótt áhrifin séu forn er niðurstaðan fersk og platan hefur fengið skínandi góða dóma. XX verður eflaust ofarlega víða þegar spekingar gera upp árið. The XX er skipað fjórum Lundúnakrökkum um tvítugt, tveimur stelpum og tveimur strákum. Romy Madley Croft spilar á gítar og syngur og Oliver Sims spilar á bassa og syngur. Að hafa söngvara af báðum kynjum skapar skemmtilega breidd og þau syngja oft á móti hvort öðru í Gainsbourg/Birkin eða Sinatra/Hazlewood-fílingi. Þau eru þó ekki kærustupar. Baria Qureshi spilar á gítar og Jamie Smith spilar á trommuheila með mikilli fimi eins og sjá má á netinu í tónleikaupptökum. Platan var tvö ár í vinnslu og á tímabili voru upptökumennirnir Diplo og Kwes með puttana í henni. Að lokum tók bandið sjálft við hljóðvinnslunni. Bandið varð til þegar meðlimirnir kynntust í Elliott listaskólanum, en þaðan eru líka bönd eins og Hot chip, Burial og Four Tet. The XX er hluti af nýrri óformlegri bylgju Lundúnasveita, sem telur bönd eins og Florence and the Machine og Micachu and the Shapes (sem væntanleg er á Airwaves). Í heimi troðfullum af nýrri tónlist sem hægt er að nálgast jafn auðveldlega og að smella á mús, er nauðsynlegt að vita hvað er gott. Og The XX er gott band. Tónlistin er mjög þurr á manninn og alvarleg, þó gríðarlega svöl og allt annað en leiðinleg. Þau fara sparlega með, það er mikið rými í lögunum og þau anda vel. Stundum er ekkert í gangi nema bassi og söngur eða trommuheili og söngur. The XX er eiginlega tímalaust band því platan þeirra hefði nánast getað komið út hvenær sem er á síðustu þremur áratugum. Ef þú fílar Roxy Music, New Order, Portishead og Interpol ætti gæðaplatan XX nú þegar að vera komin undir geislann.drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Lífið Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Tónlist Getum verið gröð án þess að blotna eða fá ris Lífið Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Lífið Fleiri fréttir Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Gengst við kókaínfíkn sinni Justin Bieber nýtur sín norður í landi Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Getum verið gröð án þess að blotna eða fá ris Hélt lítill kall í stjörnustríði væri Obi-Wan Kenobi Jón Gnarr birtir sönnunargagn A um ADHD Sveppi og Auddi í fallhlífarstökki yfir Dúbaí Nýtur lífsins í viktorísku koti í London Snorri og Nadine eignuðust son Íris Svava og Arnþór selja fallega íbúð á besta stað Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Ástfangnar í fjörutíu ár Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Infocapital Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Sjá meira