Innlent

Hosmany Ramos áfram í gæsluvarðhaldi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hosmany Ramos verður áfram í gæsluvarðhaldi.
Hosmany Ramos verður áfram í gæsluvarðhaldi.
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir brasilíska flóttamanninum Hosmany Ramos var framlengdur um tvær vikur í dag.

Ramos var handtekinn í ágúst síðastliðnum þegar að hann reyndi að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns. Brasilísk stjórnvöld fóru síðan fram á að Ramos yrði framseldur til Brasilíu og er hann í gæsluvarðhaldi þangað til ákvörðun verður tekin um það.

Ramos er á flótta frá Brasilíu eftir að hafa verið dæmdur í áratuga fangelsisvist þar í landi fyrir stórfellt fíkniefnamisferli og morð á flugmanni sem starfaði fyrir hann við fíkniefnaflutning.

Hilmar Ingimundarson, lögmaður Ramos, segir að Ramos hafi ekki viljað kæra gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms í dag til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×