Rannsókn á meintri markaðsmisnotkun Imons langt komin Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 13. ágúst 2009 18:59 Magnús Ármann.
Rannsókn sérstaks sakskóknara á meintri markaðsmisnotkun Imons, félags í eigu Magnúsar Ármanns, er einna lengst komin af þeim þrjátíu málum sem eru til meðferðar hjá embættinu. Imon, félag í eigu Magnúsar Ármanns, keypti rúmlega 4 prósenta hlut í Landsbankanum fyrir tæpa níu milljarða þremur dögum áður en Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir. Imon fjármagnaði kaupin að fullu með láni frá Landsbankanum og var eina veðið í hlutabréfunum sjálfum sem urðu verðlaus þegar bankinn var tekinn yfir. Skömmu eftir fall bankans fór málið inn á borð Fjármálaeftirlitsins. Það var síðan sent til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara en grunur leikur á að um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða en slíkt getur varðað sex ára fangelsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur gagna verið leitað á heimili Magnúsar auk þess sem hann og starfsmenn Landsbankans sem sáu um þessi viðskipti hafa verið yfirheyrðir. Þá herma heimildir fréttastofu að málið sé einna lengst komið af þeim 30 málum sem eru til rannsóknar hjá embættinu og það sé það alvarlegt að ekki verði komist hjá því að ákæra í því. Málið gæti því orðið það fyrsta sem Björn L. Bergsson, ríkissaksóknari gagnvart embætti sérstaks sakskóknara, fær til ákærumeðferðar. Ekki náðist í Magnús Ármann í dag.
Mest lesið Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Viðskipti innlent Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent Viðskipti erlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Sjá meira