Viðskipti erlent

Bréf Subaru hækkuðu um 20 prósentustig

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Subaru Impreza.
Subaru Impreza.

Hlutabréf hækkuðu í verði í Asíu í morgun og var hækkunin einkum knúin þeirri von að stjórn Baracks Obama muni beita sér af hörku fyrir ýmsum atvinnuskapandi framkvæmdum með tilheyrandi neyslu.

Til dæmis hækkuðu bréf í Fuji, sem framleiðir meðal annars Subaru-bíla, um 20 prósentustig en bílaframleiðendur hafa átt allt annað en auðvelt uppdráttar í Asíu upp á síðkastið. Bréf í Rio Tinto Group, eiganda álversins í Straumsvík, hækkuðu um rúmlega sjö prósentustig í kjölfar hækkaðs koparverðs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×