Innlent

„Hreyfingin gefur þingmönnum puttann"

„Ég vil bara mótmæla því hvernig hér er talað niður til þingsins og þingmanna,“ sagði Siv í umræðum um níu manna þingmannanefnd á Alþingi í dag.
„Ég vil bara mótmæla því hvernig hér er talað niður til þingsins og þingmanna,“ sagði Siv í umræðum um níu manna þingmannanefnd á Alþingi í dag. Mynd/GVA
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi málflutning þingmanna Hreyfingarinnar í umræðum á Alþingi í dag um þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún sagði Hreyfinguna gefa Alþingi puttann.

Skýrsla rannsóknarnefndarinnar verður birt í lok janúar en upphaflega stóð til að birta skýrsluna í nóvember. Samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir stendur til að kjósa níu manna þingmannanefnd sem mun hafa það hlutverk að fjalla um skýrslu rannsóknanefndarinnar.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði frumvarpið vont og ótrúverðugt. Alþingi ætli að rannsaka sjálft sig. Þá gagnrýndi Þór að þingnefndin ætli að taka sér níu mánuði til að fara yfir skýrsluna og skila af sér froðu um næstu Verslunarmannahelgi.

„Ég vil bara mótmæla því hvernig hér er talað niður til þingsins og þingmanna. Hér gefur Hreyfingin þingmönnum puttann og ég neita að sitja undir því," sagði Siv sem var allt annað sátt með yfirlýsingar Þórs og þingmanna Hreyfingarinnar að undanförnu.

Hún sagði rangt að þingið ætli að rannsaka sjálft sig og það viti Þór vel. Sérstök rannsóknarnefnd væri nú að störfum að rannsaka aðdraganda og orsakir bankahrunsins. Þingið fái í framhaldinu skýrslu um málið.

„Hvernig dirfist þingmaðurinn að tala svona. Hér erum við að vanda til verka og ná samstöðu í mikilvægu máli og þá kýs Hreyfingin að grafa undan öllu trausti sem við erum að reyna að byggja upp og ég mótmæli því," sagði Siv.


Tengdar fréttir

Fyrningu ráðherrabrota seinkað

Möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrnast á fjórum árum en ekki þremur, nái breytingar allsherjarnefndar Alþingis á frumvarpi til breytinga á lögum um rannsókn á falli bankanna og tengdum atburðum fram að ganga. Nefndin afgreiddi breytingartillögu þar um á fundi í gærmorgun.

Ráðherraábyrgð Davíðs og Halldórs fyrnd

Embættisfærslur Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar í embætti forsætisráðherra koma ekki til skoðunar sérstakrar þingmannanefndar sem verður gert að kanna möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins.

Nefnd um rannsóknarnefnd skipuð fyrir áramót

Níu manna þingmannanefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verður væntanlega skipuð fyrir áramót. Þingmenn vilja skipa í nefndina sem fyrst til að koma í veg fyrir frekari fyrningu brota sem snerta ráðherraábyrgð.

Þingnefndin er prófsteinn á styrk Alþingis

Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að vinnu þingmannanefndar sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sé prófsteinn á styrk og trúverðugleika þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×