Lífið

Börnin áfram hjá ömmu

Börnin þrjú sem poppkóngurinn Michael Jackson lætur eftir sig munu vera hjá ömmu sinni Katherine Jackson til 3. ágúst. Þann dag verður úrskurðað fyrir rétti hver mun hafa forræði yfir börnunum. Móðir Jacksons nýtur einnig þjónustu lögfræðinga við ná umráðarétti yfir eignum fallna goðsins.

Að sögn lögmanns fjölskyldunnar hefur hún ekki enn heyrt neitt frá Debbie Rowe en hún er móðir tveggja eldri barnanna. Yngra barnið er fætt með aðstoð staðgöngumóður. Þá hefur faðir Michaels, Joe, sagt að hagur barnanna væri í forgangi núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×