Formúla 1

McLaren í fyrsta og öðru sæti

Lewis Hamilton náði besta tíma sínum í síðasta hring æfingarinanr í dag.
Lewis Hamilton náði besta tíma sínum í síðasta hring æfingarinanr í dag. mynd: kappakstur.is

Heimsmeistarinn Lewis Hamilton var með besta tíma á seinni æfingu keppnisliða á Búdapest brautinni í dag og félagi hans Heikki Kovalainen var aðeins 47/1000 á eftir honum. Kovalainen var sneggstur á fyrri æfingunni.

Nico Rosberg á Williams var aðeins 75/1000 á eftir forystubílunum tveimur og ljóst að hart verður barist í tímatökunni á laugardag, en lokaæfing keppnisliða er á undan í fyrramálið. Hvorutveggja er í beinni útsendinu á Stöð 2 Sport.

Hamilton tók hressilega á McLaren bílnum á krókóttri Hungaroring brautinni í dag og fór útaf í tvígang áður en hann náði besta tíma í blálokinm á 90 mínútna langri æfingunni.

Mark Webber sem vann síðasta mót var fljótur á báðum æfingum dagsins og varð fjórði á þeirri síðari og Kazuki Nakajima á Wiliams á eftir honum. Williams bíllinn virðist því henta vel á brautina í Búdapest.

Forystumaður stigamótsins, Jenson Button var með 13. besta tíma og gekk því ekki vel. Nýliðinn Jamie Alguersuari frá Spáni var með slakasta tímann í dag á Torro Rosso, en hann hefur litla æfingu fengið á bílinn fyrir frumraun sína í Formúlu 1 kappakstri á sunnudaginn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×