Handbolti

Fylkir vann Gróttu í botnslagnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sunna Jónsdóttir hefur spilað vel með Fylki í vetur.
Sunna Jónsdóttir hefur spilað vel með Fylki í vetur.

Sunna Jónsdóttir skoraði ellefu mörk í 31-25 sigri Fylkis á Gróttu í botnslag N1 deildar kvenna í Fylkishöllinni í kvöld. Sigurinn dugði þó ekki Fylki til að komast upp úr neðsta sætinu því Grótta hefur einu stigi meira.

Þetta var þriðji sigur Fylkis í deildinni í vetur þar af annar sigur liðsins síðan að Reynir Þór Reynisson tók við þjálfun liðsins af Aðalsteini Reyni Eyjólfssyni.

Fylkir-Grótta 31-25 (14-13)

Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 11 Nataly Valencia 4, Sunna María Einarsdóttir 4, Ásdís Rut Jónsdóttir 3, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Elín Helga Jónsdóttir gerðu 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Hanna Rut Sigurjónsdóttir 1.

Mörk Gróttu: Elsa Óðinsdóttir 13, Laufey Guðmundsdóttir 4, Katrín Viðarsdóttir 2, Auður Ómarsdóttir 1, Arndís Erlingsdóttir 1, Harpa Baldursdóttir 1, Karólína Bæhrenz 1, Sigríður Jónsdóttir 1, Ragna Karen Sigurðardóttir 1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×