Innlent

Sveinn sætti rannsókn - málið látið niður falla

Sveinn Friðfinnsson, sem grunaður er um að hafa svikið milljarða króna af grunlausum Svíum, sætti opinberri rannsókn íslensku lögreglunnar í eitt og hálft ár, áður en málið var látið niður falla.

Sveinn Friðfinnsson, Íslendingur á fimmtugsaldri, er talinn hafa svikið milljarða króna út úr hundruðum Svía. Sænska fjármálaeftirlitið hefur varað við fyrirtæki sem honum tengist og saksóknari sænskur, rannsakar málið. Hann verst allra frétta. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, voru Svíarnir sem létu Svein hafa peninga, þó meðvitaðir um að starfsemin væri á „gráu svæði" og höfðu sumir hugsað sér að komast þannig framhjá skattinum. Svíarnir bera harm sinn á torg á sænskri spjallsíðu, þó í skjóli nafnleysis, en nefna þar Svein.

Fram kom í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi, að margir telja sig hafa verið hlunnfarna af Sveini hér á landi, löngu áður en hann fór til Svíþjóðar. Þá kom fram að hann hefði hlunnfarið fjölda manna hérlendis og síðar ráðið sér lögmenn í því skyni að bæta þeim hluta tjóns sem fólkið hefði orðið fyrir.

Einn þeirra, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir við fréttastofu, að hann hafi látið Svein fá tvær milljónir króna árið 2004. Peningana átti að ávaxta með gjaldeyrisviðskiptum. Hann segist síðan hafa áttað sig á því að þetta hafi verið svikamylla. Það sé ofar sínum skilningi nú, hvers vegna hann hafi látið Svein hafa peninga.

Hann og tveir menn aðrir, sem töldu sig hlunnfarna í viðskiptum við Svein, kærðu hann til lögreglu fimmtánda desember 2005. Lögreglan hóf rannsókn á málinu. Í bréfi sem Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lögfræðingur hjá Lögreglu, sendi kærandanum, fimmtánda mars í hittiðfyrra; næstum einu og hálfu ári síðar, segir að ekki þyki grundvöllur til að halda áfram opinberri rannsókn í málinu vegna kærunnar. Því hafi rannsókninni verið hætt.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×