Norska meistaraliðið í handknattleik, Fyllingen, tilkynnti í dag að það hefði gert tveggja ára samning við Haukamanninn Andra Stefan.
Andri hafði verið í viðræðum við bæði Fyllingen og Drammen og valdi Fyllingen á endanum.
Miðjumaðurinn knái verður augljóslega ekki í fullri atvinnumennsku í Noregi því fram kemur í fréttinni að félagið sé að leita að vinnu fyrir leikmanninn.
Stefnt er að því að Andri fái 60 prósent vinnu og muni því vinna þrjá daga í viku samhliða handboltanum.
Haukarnir hafa þegar fengið arftaka fyrir Andra því Björgvin Hólmgeirsson skrifaði undir samning við félagið í gær.