Formúla 1

Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1

Ferrari liðinu hefur ekki gengið vel í mótum ársins.
Ferrari liðinu hefur ekki gengið vel í mótum ársins. mynd: kappakstur.is

Stjórn Ferrari kemur saman á morgun til að skoða framtíð fyrirtækisins í Formúlu 1. Forseti Ferrari hefur þegar hótað að draga lið sitt úr Formúlu 1, en nýjar reglur varðandi rekstrarkostnað eiga að taka gildi á næsta ári. Fleiri lið eru að skoða stöðu sína.

Max Mosley hjá FIA hefur sett fram tilllögu sem snarminnkar möguleika liða á að kosta til ómældum fjármunum í Formúlu 1. Minni liðin eru samþykk þessu , en stórliðin sem eru styrkt af bílarframleiðendum hafa sett sig upp á móti tilllöguninni, síðast í dag gaf Red Bull út tilkynningu um slíkt. Þó er það sjálfstætt keppnislið.

Ferrari hefur keppt í Formúlu 1 frá 1950 og yrði sannarlega sjónarsviptir ef liðið hyrfi af vettvangi, en forseti Ferrari, Luca Montezemolo gæti líka verið að þrýsta á FIA að endurskoða mögulega reglubreytingu.

Mosley sagði að Formúla 1 gæti alveg séð á eftir Ferrari, en Bernie Ecclestone segir hins vegar að Formúlu 1 og Ferrari séu eitt og hið sama. Það má til sanns vegar færa, þar sem liðið hefur unniið óteljandi meistaratitila gegnum tíðina.

Ferrari hefur hins vegar ekki gengið vel í mótum ársins. Talið er að Ferrari kosti til hátt í 400 miljónum dala í Formúlu 1 á ári, en FIA vill skera rekstrarkostnað niður um nærri 80% fyrir næsta ár. Þessu vilja bílaframleiðendur ekki hlýta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×