Formúla 1

Branson fengur fyrir Formúlu 1

Richard Branson eigandi Virgiin er margfaldur miljarðamæirngur.
Richard Branson eigandi Virgiin er margfaldur miljarðamæirngur. Mynd: Getty Images
Bernie Ecclestone telur að það yrði mikill fengur fyrir Formúlu 1 ef miljarðamæringurinn Richard Branson kaupir búnað Honda liðsins, eins og rætt hefur verið í fjölmiðlum í Englandi síðustu daga.

Honda menn segja þó að ekkert sé frágengið í þeim málum og Formúlu deildinni gætu verið lokað, þrátt fyrir umleitanir ýmissa aðila. Nick Fry og Ross Brawn eru að vinna í því að halda liðinu á floti með öllum ráðum, enda er búið að hanna og smíða bíl liðsins.

Jenson Button og Bruno Senna bíða enn eftir því hvort liðið verður starfrækt eður ei. Ein hugmynd er í gangi sem þýðir að Fry og Brawn eignast liðið og nota styrktarfé sem fylgir Senna í rekstrarkostnað. Honda gæti hugsanlega styrkt liðið eitthað áfram, þó Mercedes muni sjá liðinu fyrir vélum.

"Ég myndi taka Virgin og Richard Branson opnum örmum. Hann er týpa sem ég kann vel við og persónuleiki sem okkur vantar í Formúlu 1", sagði Ecclestone.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×