Innlent

Geiri á Goldfinger segist hafa styrkt alla flokka - líka VG

Geiri á Goldfinger segist hafa styrkt alla stjórnmálaflokka.
Geiri á Goldfinger segist hafa styrkt alla stjórnmálaflokka.
Ásgeir Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, segist hafa styrkt alla stjórnmálaflokka undanfarin ár. Mikið hefur verið rætt um 300 þúsund króna styrkt Baltic sem er fyrirtæki Geira til Sjálfstæðisflokksins. Hann segist hinsvegar hafa styrkt alla flokka og meira að segja Vinstri græna. Geiri er staddur í Tælandi en ætlar að fá upplýsingar frá endurskoðanda um styrki til stjórnmálaflokkanna þegar hann kemur heim.

„Ég hef ekki verið að gera upp á milli flokka. Það er hinsvegar annað mál að þetta eru fjögur fyrirtæki sem ég er með og það getur verið að það hafi víxlast eitthvað. Sumir hafa fengið frá Baltic og aðrir frá öðrum fyrirtækjum sem eru þá dótturfyrritæki Baltic. Ég var að skipta þessu á milli flokkanna," segir Geiri.

Honum finnst leiðinlegt hvernig umræðan hefur verið um styrki sína þar sem hann hafi aldrei beðið um neitt í staðinn.

„Það eru fáir sem vita að Baltic er Goldfinger en ég bjó þetta nafn til þegar kvótakarlarnir voru að eyða háum upphæðum hér áður fyrr þegar góðærið stóð sem hæst. Þá straujuðu menn kortið en sögðu síðan við konurnar að þeir hefðu verið að kaupa veiðarfæri, þetta er nefnilega svolítið fiskilegt nafn," segir Geiri og hlær.

Geiri segist ekki muna hve mikið hver flokkur hafi fengið hjá sér, það hafi verið misjafnt. Hann hafi hinsvegar styrkt stjórnmálaflokkana í mörg ár.




Tengdar fréttir

Súlukóngur styrkir Sjálfstæðisflokkinn

Súlukóngurinn Ásgeir Þór Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger, eins og hann er iðullega kallaður, styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjúhundruð þúsund krónur fyrir alþingiskosningarnar árið 2007. Það er hæsta mögulega upphæðin sem má gefa stjórnmálaflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×