Innlent

Skoppari á landsbyggðinni: Mætti fordómum og lamdi sveitunga sinn

Rapparamenningin hefur haft gríðarleg áhrif á ungt fólk. Mynd úr safni.
Rapparamenningin hefur haft gríðarleg áhrif á ungt fólk. Mynd úr safni.

Maður á þrítugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á manni í teiti á Stokkseyri. Árásin átti sér stað í maí á síðasta ári. Hann kom þá í gleðskap í heimahúsi.

Þar heyrði hann einhverja ræða um strák sem hefði verið klæddur í „hipp-hopp föt" og væri sköllóttur. Hefði sá hinn sami verið nefndur „want to be nigger" eins og það er orðað í dómsorði.

Skopparinn bað þá þolandann að koma með sér inn á klósett og læsti að sér. Hann ásakaði fórnalambið um að hafa verið sá sem hefði haldið því fram að ákærði klæddi sig eins og „niggari".

Fórnalambið neitaði þessum ásökunum en þá brást hinn dæmdi við með því að slá fórnalambið mörgum höggum með krepptum hnefa auk þess að skalla hann ítrekað í andlitið.

Brotaþoli kvaðst ekki hafa svarað þessum höggum á nokkurn hátt heldur reynt að verja sig.

Engin vitni hafi verið að árásinni inni á salerni en fullt af krökkum hafi legið á baðherbergishurðinni og barið á dyrnar til að þær yrðu opnaðar.

Hinn dæmdir hélt því fram að hann hefði ráðist á hann í sjálfsvörn. Þessu var hafnað á þeim forsendum að árásin beindist meðal annars að höfði brotaþolans.

Þetta er í þriðja skiptið sem skopparinn er dæmdur fyrir líkamsárás. Því þótti ekki rétt að skilorðsbinda dóminn. Honum er einnig gert að greiða fórnalambi sínu 300 þúsund krónur í skaðabætur auk þess sem hann þarf að standa straum af málskostnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×