Formúla 1

Toyota að slá toppliðin út

Timo Glock á Toyota hefur verið fljótastur allra tvo daga í röð.
Timo Glock á Toyota hefur verið fljótastur allra tvo daga í röð. Mynd: Getty Images

Timo Glock á Toyota hefur verið sprettharður síðustu daga á Jerez brautinni á Spáni, en æfingar þar eru liður í undirbúningi Formúlu 1 liða fyrir tímabilið sem hefst í lok mars.

Glock var sneggstur þegar rigndi á mánudag og einnig í gær, en Felipe Massa á Ferrari reyndist næst fljótastur báða dagana.

"Það er ljóst að 2009 bíllinn er fljótari en 2008 bíllinn. Svo henta nýju sléttu kappakstursdekkin mér betur en ella. Ég hef notað slík dekk í fjölda ára og fékk nokkur grá hár við að prófa dekkin með raufum sem voru notuð í fyrra. Ég vandist þeim þó, en þessi eru betri", sagði Glock eftir æfingarnar í gær.

Misjafnt er hvort keppnislið ætla að nota KERS kerfið svokallað sem býður upp á aukin kraft í tæpar 7 sekúndur í hring, en sum lið telja búnaðinn ekki nægilega traustan fyrir fyrsta mót. Búnaðurinn á að auka möguleika á framúrakstri.

Formúlu 1 liðin verða á Jerez í dag og á morgun, en síðan er hlé til mánudags. Þá aka keppendur á Barcelona brautinni á Spáni í fjóra daga. Má búast við öllum liðum þar, en Stöð 2 Sport verður þar á staðnum við undirbúningi á fyrstu þáttum um Formúlu 1. Fyrsti þáttur verður 18. mars.

Sjá meira um Toyota bílinn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×