Viðskipti erlent

Hlutabréf hækkuðu í Asíu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun og má meðal annars rekja hækkunina til vangaveltna um að japanskir og suðurkóreskir bílaframleiðendur muni græða á hugsanlegu gjaldþroti bandarísku bílarisanna General Motors og Chrysler sem nú virðist vofa yfir. Bréf Honda-bílaverksmiðjanna hækkuðu til dæmis um 6,7 prósent en rúmlega helmingur allra framleiddra Honda-bíla fer á Bandaríkjamarkað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×