Golf

Signý og Einar unnu

Sigurvegararnir kátir.
Sigurvegararnir kátir.

Þriðja stigamót Golfsambandsins fór fram um helgina á Urriðavelli. Vallarmet féllu af bláum og hvítum teigum um helgina. Vallarmet sem Signý Arnórsdóttir GK setti gær stóð ekki lengi því Eygló Myrra Óskarsdóttir GO, lék á 69 höggum í dag og bætti þar með vallarmet Signýar um 1 högg.

Í kvennaflokki var það Signý Arnórsdóttir GK, sem sigraði, hún lék á 141 höggi eða 1 undir pari, önnur varð Ragnhildur Sigurðardóttir GR, á 142 höggum eða á pari vallarins og í þriðja sæti varð Eygló Myrra Óskarsdóttir GO, á 144 höggum eða 2 yfir pari. Signý  er komin með forystu á stigalista GSÍ, hún sigraði einnig á síðasta stigamóti GSÍ sem leikið var á Garðavelli.

Í karlaflokki var það Einar Haukur Óskarsson, GOB, sem sigraði á  134 höggum eða 8 undir pari.  Einar Haukur spilaði á 69 höggum í dag og fylgdi því eftir frábærum hring í gær þegar hann setti glæsilegt vallarmet  af hvítum teigum þegar hann lék völlinn á 65 höggum. Í öðru sæti varð Björgvin Sigurbergsson, GK, hann lék á 137 höggum eða 5 undir pari, jafnir í þriðja til fjórða sæti urðu Haraldur Franklín Magnússon GR og Andri Þór Björnsson GR á 142 höggum eða á pari vallarins.

Hér er listi yfir 20 stigahæstu kylfingana á stigalista GSÍ og er þá búið að setja inn stigin fyrir mót helgarinnar.

Karlaflokkur

1 Magnús Lárusson GKJ   2431.50

2 Björgvin Sigurbergsson GK  2152.50

3 Alfreð Brynjar Kristinsson GKG  2002.50

4 Sigmundur Einar Másson GKG  1981.88

5 Helgi Birkir Þórisson GSE  1914.38

6 Einar Haukur Óskarsson GOB  1785.00

7 Þórður Rafn Gissurarson GR  1710.00

8 Axel Bóasson GK    1627.50

9 Sigurþór Jónsson GR   1500.00

10 Ólafur Björn Loftsson NK  1312.50

11 Kristján Þór Einarsson GKJ  1308.75

12 Örn Ævar Hjartarson GS  1134.75

13 Haraldur Franklín Magnús GR  1078.50

14 Andri Þór Björnsson GR   1039.05

15 Birgir Guðjónsson GR   1008.00

16 Arnór Ingi Finnbjörnsson GR   992.64

17 Ottó Sigurðsson GR      918.75

18 Arnar Snær Hákonarson GR    880.95

19 Hjörtur Levi Pétursson GHR    825.00

20 Andri Már Óskarsson GHR     814.07

Kvennaflokkur

1 Signý Arnórsdóttir GK   3562.50

2 Eygló Myrra Óskarsdóttir GO  3146.25

3 Ragna Björk Ólafsdóttir GK  3060.00

4 Valdís Þóra Jónsdóttir GL  2970.00

5 Ragnhildur Sigurðardóttir GR  2883.75

6 Ingunn Gunnarsdóttir GKG  2250.00

7 Nína Björk Geirsdóttir GKJ  2032.50

8 Ásta Birna Magnúsdóttir GK  1940.00

9 Tinna Jóhannsdóttir GK   1710.00

10 Heiða Guðnadóttir GKJ   1455.00

11 Ingunn Einarsdóttir GKG  1215.00

12 Sunna Víðisdóttir GR   1215.00

13 Íris Katla Guðmundsdóttir GR  1020.00

14 Þórdís Geirsdóttir GK     965.00

15 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR    787.50

16 Hansína Þorkelsdóttir GKG    765.00

17 Jódís Bóasdóttir GK      712.50

18 Erna Valdís Ívarsdóttir GKG    570.00

19 Tinna Arinbjarnardóttir GR     540.00

20 Karen Guðnadóttir GS    500.00




Fleiri fréttir

Sjá meira


×