Lífið

Pee Wee snýr aftur

Leikarinn Paul Reubens er þarna undir.
Leikarinn Paul Reubens er þarna undir.

Það versta sem getur hent barnastjörnu er sennilega að vera gripinn af löggunni með allt niður um sig í klámbíói. Einmitt þessu lenti Paul Reubens í árið 1991.

Hann hafði slegið í gegn snemma á níunda áratugnum í hlutverki Pee Wee Hermans, bæði í vinsælum sjónvarpsþáttum og í kvikmyndinni Pee Wee‘s Big Adventure, sem Tim Burton leikstýrði 1985. Eftir atvikið hrundi heimur Pauls, þættirnir voru teknir af dagskrá og leikfangabúðir fjarlægðu Pee Wee Herman dót. Atvikið lagðist þungt á leikarann og hann fór huldu höfði árum saman. Nú er hins vegar allt á uppleið og Pee Wee hefur birst hjá bæði Leno og Conan.

Með hjálp förðunarsnillinga lítur hann ekki út fyrir að hafa elst um einn dag. Í janúar fer sýningin The Pee Wee Herman Show á svið í Los Angeles og í undirbúningi er ný kvikmynd um ævintýri grallarans.- drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×