Viðskipti erlent

Grimsby hagnast á erfiðleikum Íslands

Fisksalar í Grimsby brosa nú út að eyrum þar sem íslensk fiskiskip eru aftur byrjuð að sigla til þessarar sögufrægu hafnarborgar og selja þar afla sinn eftir 12 ára stopp.

Fjallað er um málið á BBC undir fyrirsögninni „Grimsby hagnast á erfiðleikum Íslands". Þar segir að siglingar Íslendinga með fisk til Grimsby þessa dagana eigi stóran þátt í að endurreisa það sem eitt sinn var líflegur fiskiðnaður bæjarins.

Fyrrum komu fiskskip hlaðin afla úr Norðursjónum og lögðu hann upp í höfninni í Grimsby. Á tímabili voru umsvifin það mikil að Grimsby var stærsta fiskveiðihöfn heimsins.

Í dag hafa togararnir nær alveg horfið og eini fiskurinn sem barst til Grimsby kom annaðhvort með flugi eða var keyrður á staðinn í gámum annarsstaðar frá. Það er þar til íslensku skipin lögðu aftur að bryggju í bænum.

„Gámarnir eru enn okkar brauð og smjör en þessi skip eru síðan sultan þar ofan á," segir Steve Norton formaður samtaka fisksala í Grimsby. „Það er frábært að sjá þessi skip aftur eftir 12 ár. Það er gríðarlegur áhugi á fiskinum og verðin eru hagstæð."

Norton segir að Íslendingar séu nú að reyna að veiða sig út úr fjármálakreppunni og hann nefnir nýlega aukningu þorskkvótans upp á 30.000 tonn sem dæmi. „Þeim er vel tekið hér, þeir ná hagstæðum samningum og þeir fá greitt fyrir aflann um leið," segir Norton.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×