Fótbolti

Crespo fer frá Inter í sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hernan Crespo í leik með Inter.
Hernan Crespo í leik með Inter. Nordic Photos / AFP

Hernan Crespo ætlar að yfirgefa ítalska úrvalsdeildarfélagið Inter nú í sumar enda hefur hann fá tækifæri fengið á yfirstandandi tímabili.

Hann skoraði þó eitt mark í 3-3 jafntefli Inter gegn Roma í gærkvöldi en sagði eftir leikinn að það breytti engu.

„Staðreyndirnar tala sínu máli. Ég virði ákvarðanir þjálfarans og ætla mér ekki að valda einhverjum usla vegna þeirra. Ég er fagmaður og mun leggja mig 100 prósent fram."

„En það er ljóst að ég fer frá félaginu í júní næstkomandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×