Formúla 1

Vettel á ráspól í Tyrklandi

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sebastian Vettel er á ráspól í Tyrklandi.
Sebastian Vettel er á ráspól í Tyrklandi. Nordicphotos/GettyImages
Sebastian Vettel á Red Bull er á ráspól fyrir tyrkneska Formúlu-1 kappaksturinn á morgun. Tímatakan var dramatísk fram á síðustu stundu en Vettel tryggði sér pólinn með frábærum hring í blálokin.

Mark Webber hélt að hann væri kominn með pólinn þegar Jenson Button skákaði honum. Rubens Barichello hirti svo þriðja sætið af Webber áður en Vettel tryggði sér pólinn á síðustu stundu.

Í síðustu fjórum keppnum í Tyrklandi hefur sá sem er á ráspól alltaf sigrað.

"Ég var með sjálfstraustið í lagi en þetta var frábær dagur og kannski svolítið óvænt að vera með besta tímann í dag," sagði Vettel sem þakkaði liðinu sínu kærlega fyrir árangurinn.

Tímarnir í dag:

1. S Vettel (Red Bull)

2. J Button (Brawn)

3. R Barrichello (Brawn)

4. M Webber (Red Bull)

5. J Trulli (Toyota)

6. K Raikkonen (Ferrari)

7. F Massa (Ferrari)

8. F Alonso (Renault)

9. N Rosberg (Williams)

10. R Kubica (BMW Sauber)

11. N Heidfeld (BMW Sauber)

12. K Nakajima (Williams)

13. T Glock (Toyota)

14. H Kovalainen (McLaren)

15. A Sutil (Force India)

16. L Hamilton (McLaren)

17. N Piquet Jr ( Renault)

18. S Buemi (Toro Rosso)

19. G Fisichella (Force India)

20. S Bourdais (Toro Rosso)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×