Formúla 1

Titilslagurinn riðlast vegna árangurs McLaren

Lewis Hamilton var fljótastur í Valencia í dag.
Lewis Hamilton var fljótastur í Valencia í dag.

Árangur McLaren manna í tímatökum á Spáni í dag mun setja svip sinn á titilslaginn, þar sem Lewis Hamilton og Heikki Kovalainen eru fremstir á ráslínu. Fjórir ökumenn eru að berjast um titilinn og Rubens Barrichello er fremstur þeirra í þriðja sæti.

Hinir eru Sebastian Vettel, sem er fjórði, Jenson Button í fimmta sæti og Mark Webber sem varð níundi. Hver stig sem þeir ná er dýrmætt og því setur það strik í reikninginn að tveir ökumenn sem ætla að barjast um sigur eru fremstir á ráslínunni.

Brawn Barrichello er bensínþyngri en McLaren bílarnir og spurning hvort það hjálpar honum í kappakstrinum að smokra sér framúr í þjónustuhléum eður ei. Hamilton vann síðustu keppni, sem var í Ungverjalandi og er til alls líklegur. Kovalainen er að berjast fyrir sæti sínu hjá McLaren á næsta ári og mun ekkert gefa eftir. Honum var uppálagt að ná betri árangri, ellegar missa sæti sitt hjá liðinu.

Barrichello var með besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða á föstudag og það er viss hvatning fyrir hann að ná góðum árangri í keppni sem Felipe Massa vinur hans vann í fyrra. Massa er í hvíld frá Formúlu 1 eftir óhapp í Ungverjalandi. Barrichello keyrir með hjálm sem búið er að mála hvatningu til Massa. Það yrði huggun gegn harmi, ef Barrichello færði vini sínum sigur og næði þannig dýrmætum stigum í stigakeppni ökumanna.

Ræsingin skiptir verulegu máli og McLaren bílarnir eru með KERS kerfið, 80 auka hestöfl og einnig Ferrari KImi Raikkönen, sem er sjötti. Hann hefur náð framúr mörgum bílum í ræsingu í síðustu mótum. Hvað sem gerist er ljóst að kapparnir í titilslagnum munu berjast fyrir hverju stigi sem er í boði.

Sjá stigastöðuna og brautarlýsingu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×