Lífið

Kynslóðaskipti í núðlunum

Móðir Charins rekur veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hann hefur nú fetað í fótspor hennar og opnað núðlustaðinn Noodle Station.Fréttablaðið/gva
Móðir Charins rekur veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hann hefur nú fetað í fótspor hennar og opnað núðlustaðinn Noodle Station.Fréttablaðið/gva

Veitingastaðurinn Noodle Station sem var opnaður nýlega við Skólavörðustíg 21a er í eigu hins þrítuga Charin Thaiprasert sem hefur staðið vaktina á staðnum alla daga síðan. „Mamma mín er kokkur og rekur taílenska veitingastaðinn Gullna hliðið á Álftanesi. Hún aðstoðaði mig mikið við að koma þessu af stað og lét mig meðal annars fá uppskriftina að súpunum sem seldar eru á Noodle Station,“ segir Charin. Móðir hans, Nok, hefur lengi starfað við veitingarekstur og sem barn aðstoðaði hún meðal annars móður sína við súpusöluvagn hennar í Taílandi. Charin flutti ásamt móður sinni og yngri bróður hingað til lands árið 1989. Fjölskyldan hefur reynt að heimsækja Taíland reglulega en Charin segir kreppuna þó hafa sett strik í reikninginn. „Við heimsækjum Taíland reglulega en eftir að kreppan skall á er flugið orðið of dýrt, þannig að það er einhver bið í næstu heimsókn.“

Noodle Station býður upp á núðlusúpur sem hafa slegið rækilega í gegn hjá viðskiptavinum. Aðspurður segist Charin þó ekki ætla að bæta við matseðilinn á næstunni, heldur halda sig við einfalda en góða matseld. „Fólk virðist vera mjög ánægt og margir hafa lýst því yfir að þetta sé besta súpa sem þeir hafi smakkað. Ég ætla þó að halda mig við einfaldan og ódýran matseðil eins og er því ég stend einn í þessu og vinn eins og skepna alla daga.“

Það var stjúpfaðir Charins, Bogi Jónsson, áður kenndur við Boga­rúllur, sem stakk upp á að hann opnaði eigin veitingastað og þótti Charin sú hugmynd svo góð að hann ákvað að slá til. „Ég tók út allan sparnaðinn minn og lagði í þetta. Ég var auðvitað ekki viss hvort þetta mundi ganga í fyrstu, en svo hefur þetta gengið vonum framar.“ sara@frettablaðið.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.