Handbolti

Florentina samdi til þriggja ára

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Florentina Stanciu, leikmaður Stjörnunnar.
Florentina Stanciu, leikmaður Stjörnunnar. Mynd/Anton

Florentina Stanciu hefur samið við Stjörnuna um að leika áfram með liðinu næstu þrjú árin.

Þetta staðfesti Þór Jónsson, formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, í samtali við Vísi.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir Stjörnuna enda frábær íþróttamaður og góður félagi og samstarfsmaður," sagði Þór.

Stanciu var kjörinn besti markvörður N1-deildar kvenna á nýliðnu tímabili en Stjarnan varð bæði Íslands- og bikarmeistari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×