Formúla 1

Trulli tileinkaði fórnarlömbum jarðskjálta árangurinn

Sebastian Vettel, Jarno Trulli og Timo Glock voru fremstir í tímatökum í Bahrain í dag.
Sebastian Vettel, Jarno Trulli og Timo Glock voru fremstir í tímatökum í Bahrain í dag. Mynd: Getty Images

Formúlu 1 ökumaðurinn Jarno Trulli frá Ítalíu tileinkaði árangurinn í tímatökum í Bahrain í dag fórnarlömbum jarðaskjálftahrinu í héraðinu Ambruzzo á Ítalíu fyrir nokkrum vikum. Hann býr sjálfur í Pescara á Ítalíu sem er í sama héraði.

"Það er frábært að vera aftur fremstur á ráslínu. Mótshelgin hefur gengið vel, nema í morgun að þá lenti ég í vandræðum með bremsukerfið. Ég hef smávegis áhyggjur af því fyrir kappaksturinn. Það reynir mikið á bremsurnar á þessari braut. Pedallinn varð linari og linari eftir því sem á leið tímatökuna", sagði Trulli eftir tímatökuna í Bahrain sem var mjög spennandi.

"Ég hef náð að halda dekkjunum góðum og það er lokst að allt að ganga upp samkvæmt plani. Fyrstu þrjú mótin voru ekkert sérlega góð. Það vil ég tileinka þennan ráspól liði mínu og fólkinu heima í Abruzzo á Ítalíu sem upplifði skelfilegan jarðskjálfta í síðustu viku", sagði Trulli.

Keppnisgalli hans var merktur Abruzzo héraðinu og hjartalaga merki og hann benti ákaft á merkið eftir að hann fagnaði ráspólnum. Kappaksturinn í Bahrain er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11:30 á sunnudag.

sjá fleiri ummæli ökumanna










Fleiri fréttir

Sjá meira


×