Formúla 1

Button hefur áhyggjur af gangi mála

Jenson Button ásamt kærustu sinni Jessicu Michibata.
Jenson Button ásamt kærustu sinni Jessicu Michibata. mynd: kappakstur.is
Jenson Button er ekki alls kostar sáttur við stöðuna hjá Brawn liðinu þessa dagana. Eftir draumabyrjun á árinu hefur hann ekki unnið í þremur síðustu mótum. Um helgina vann Lewis Hamilton sitt fyrsta mót og Mark Webber hefur sótt 15 stiga á forskot Buttons í stigamótinu.

"Webber er búinn að ná fimm stigum á mig að meðaltali í þremur mótum. Það eru sjö mót eftir og ef þetta heldur áfram verður hann búinn að ná mér eftir fjögur... Þetta er svipað og að vera í gulu treydjunni í Frakklandstúrnum, vitandi það að þegar þú kemur í fjalllendi þá missir þú af forystunni"; sagði Button um stöðuna í stigamótinu. Hann er nú með 18.5 stig á Webber sem ekur Red Bull.

"Við verðum að leysa vanda okkar sem felst í því að ég næ ekki hita í dekkinn í mótum. Svo vandast málið þar sem loka verður höfuðstöðvum liðsins í tvær vikur i ágúst samkvæmt samkomulagi allra liða og FIA. Þá verður engin þróunarvinna. Það er gaman að leiða meistaramótið, en ekki ef maður sér fram á slakt gengi í næstu mótum. Kannski eru veðurguðirnir að gera mótið spennandi með því að hafa kaldara veður en ella, en það háir okkur. Dekk okkar eru 60 gráðu heit í keppni, en þurfa að vera um 80. Við verðum að leysa þetta mál", sagði Button.

Sjá stigagjöfina í mótum ársins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×