Handbolti

Nú var lukkan ekki á bandi GOG - Ásgeir Örn með þrjú mörk

Ómar Þorgeirsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson. Nordic photos/AFP

Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í GOG urðu að sætta sig við 24-23 tap gegn Århus GF í danska handboltanum í kvöld en sigurmark Árósarmanna kom á síðustu sekúndu leiksins.

Skemmst er að minnast sigurmarks Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar fyrir GOG á lokasekúndunum í sigurleik gegn Bjerringsbro-Silkeborg en nú var lukkan ekki á bandi GOG-manna.

Ásgeir Örn skoraði þrjú mörk fyrir GOG í kvöld en þetta var annað tap GOG í tíu leikjum í deildinni.

Þá skoraði Arnór Atlason tvö mörk í 34-26 sigri FCK gegn Tvis Holstebro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×