Írland væri í sporum Íslands ef ekki væri fyrir aðild að evrunni, hefur Irish Times eftir José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
„Ástandið í löndum evrusvæðisins væri mun verra og miklu erfiðara ef við hefðum ekki evruna. Ég nefni gjarnan Írland og ber saman við Ísland, sem gott dæmi um velgengni evrusvæðisins,“ sagði Barroso á blaðamannafundi á miðvikudag.
Irish Times segir ummælin líkleg til að pirra Brian Cowen, forsætisráðherra Íra, en í janúar gagnrýndi hann samanburð Barroso á Írlandi og Íslandi, en sá síðarnefndi nefndi löndin á ráðstefnu World Economic Forum í Davos í Sviss. „Samanburðurinn er ónákvæmur. Á Írlandi hefur gengið mjög vel í 12, 13 ár. Hvert árið öðru betra,“ sagði Cowen um samanburðinn og kvaðst ekki mundu umbera „illt tal um Írland“.
Í október varð hins vegar Micheál Martin, utanríkisráðherra Íra, fyrstur til að velta fyrir sér muninum á Íslandi og Írlandi, að sögn Irish Times. „Við sjáum erfiðleikana sem Ísland á við að etja sem land sem er eitt á báti. Það bendir til þess að mun betra sé að vera í hjarta Evrópu en í útjaðrinum og að ganga leið einangrunar […] Þetta er íhugunarefni fyrir okkur hér innanlands,“ sagði hann þá. - óká