Formúla 1

Mercedes tilbúið að liðsinna Honda

Ross Brawn vonast til að geta selt Honda liðið þannig að liðlega 600 mans haldi vinnunni.
Ross Brawn vonast til að geta selt Honda liðið þannig að liðlega 600 mans haldi vinnunni. Mynd: Getty Images
Honda leitar enn kaupanda að Formúlu 1 liði sínu sem tekur yfir launagreiðslur til liðsmanna liðsins. Ef ekki tekst að selja liðið er talið að Honda verði að borga starfsmönnum 100 miljónir dala í bætur, en á sjöunda hundrað manns verða þá avinnulausir.

"Ef Honda finnur kaupanda að liðinu, þá er Mercedes tilbúið að aðstoða liðið með keppnisvélar. En greiðslutrygging þarf að vera til staðar. Það er ekki hægt að gefa vélarnar eins og efnahagsástandið er þessa daganna", sagði Nobert Haug hjá Mercedes.

Mercedes starfar náiið með McLaren liðinu og hefur þegar samið við Force India um undirvagn og vélar fyrir komandi tímabil. Haug segir að gífurleg vinna hafi farið í að hanna og smíða KERS kerfið sem flest keppjnislið verða með á þessu ári. Það færir ökumanni möguleika á aukaafli í tiltekinn fjölda skipta í hverju móti.

Fari svo að Honda liðið verði selt og leitii á náðir Mercedes með vélar, þá mun fyrirtæki sjá þremur keppnisliðum fyrir vélum á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×