Mikil mannvirkjagerð stendur fyrir dyrum á Akureyri á vegum aðíla hjá bílaklúbbi Akureyrar, en til stendur að reisa allra handa kappakstursbraut á svæði rétt við bæinn.
Ítarlega er fjallað um málið í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport á fimmtudagskvöld. Björgvin Ólafsson er meðal gesta þáttarins og hann sagði mannvirkin bjóða upp á kappakstur af ýmsu tagi, bæði fyrir bíla og mótorhjól. Ökugerði fyrir bílnema verður einnig á staðnum og aðstaða fyrir torfæru.
Björgvin sagði að fjárfestar hefðu sýnt málinu mikinn áhuga og þegar hefur umtalsverðum fjármunum verið varið í hönnun brautarinnar og alla undirbúningsvinnu. Hann kvaðst ekki hafa áhyggjur að fjármögnun brautarinnar, þrátt fyrir að efnahagskreppa hefði víða drepið niður fæti hérlendis.
Þátturinn á Stöð 2 Spprt á dagskrá kl. 20.00 og er hann endursýndur um helgina á undan tímatökum frá Abu Dhabi og kappakstrinum á sunnudag.
Í þættinum er rætt við Jenson Button, Mark Webber, Stefano Domenicali og ítarlega fjallað um nýju brautina í Abu Dhabi sem keppt verður á um helgina. Þá er rætt við aðila sem hefur búið í Abu Dhabi og umsjónarmann að gerð nýrrar teiknimyndaseríu um Formúlu 1.
Sjá meira um Bílaklúbb Akureyrar
Sjá brautarlýsingu frá Abu Dhabi