Formúla 1

Massa braggast hægt og rólega

Felipe Massa meiddist í óhappi á laugardaginn.
Felipe Massa meiddist í óhappi á laugardaginn. mynd: kappakstur.is
Læknar sem sjá um Felipe Massa á spítla í Búdapest eftir slys tímatökum á

laugardaginn segja að líðan hans sé stöðug og fyrstu

merki um að hann nái fullri heilsu séu jákvæð. Þó sé enn of snemmt að

fullyrða stöðu hans.

Massa fór í neyðaraðgerð eftir að hafa höfuðkúpubrotnað í árekstri á

laugardaginn. Massa hefur verið haldið sofandi, en vakinn upp annað

slagið til að fylgjast með líðan hans. Læknar segja hann geta hreyft

hendur og fætur, sem vísar á það að hann hafi ekki orðið fyrir

heilaskemmdum í óhappinu. Hann er sagður skilja það sem er sagt við hann,

en hefur ekki talað enn sem komið er.

Líkami Massa verður settur í svokallaðan CT skanna í dag til að kanna

ástand hans betur. Þú læknar séu jákvæðir, þá vilja þeir ekkert fullyrða

um ástand Massa fyrr en hann hefur verið vakinn upp að fullu, sem gæti

orðið á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×