Formúla 1

Evrovisjón stjarna spyrnir í Mónakó

Keppinautar í kvöld. María Björk og Jóhanna Guðrún spretta úr spori í ökuhermi á Stöð 2 Sport í kvöld og aka götur Mónakó.
Keppinautar í kvöld. María Björk og Jóhanna Guðrún spretta úr spori í ökuhermi á Stöð 2 Sport í kvöld og aka götur Mónakó.
Jóhanna Guðrún, söngstjarna okkar Íslendinga spyrnir um götur Mónakó í kvöld, en keppt er í Formúlu 1 í furstadæminu í um helgina. Jóhann tekur slaginn í kapp við klukkuna í ökuhermi á Stöð 2 Sport í þættinum Rásmarkið kl. 20.00 í kvöld.

Mætir hún umboðsmanni sínum til 10 ára, Maríu Björk sem er fagurkeri á bíla og dóttir Sverris Þórodssonar fyrrum kappaksturskappa. Þátturinn er upphitun fyrir kappaksturinn í Mónakó sem er ætíð stjörnum prýddur og fer því vel á því að Jóhanna taki sprett á brautinni eftir gott gengi í Moskvu.

Ragnar Agnarsson er einnig gestur þáttarins en hann er sá Íslendingur sem trúlega hefur farið á flest Formúlu 1 mót. Hann hefur heimsótt hátt í tuttugu Formúlu 1 mót og verið í innsta hring á flestum þeirra með Williams liðinu. Ragnar hefur fimm sinnum verið í Mónakó.

Í þættinum verður rætt við Jenson Button og Nico Rosberg sem báðir búa í Mónakó. Rásmarkið hefst kl. 20.00. Strax á eftir verður sýnd samantekt frá tveimur æfingum dagsins, en æft er á fimmtudögum í Mónakó en ekki föstudögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×