Innlent

Íslendingur sagður heilinn á bakvið sænska svikamyllu

Íslendingur á fimmtugsaldri er grunaður um að vera heilinn á bakvið fjársvik í Svíþjóð sem gætu numið milljörðum íslenskra króna. Sagt er frá málinu í sænska dagblaðinu Dagens Industri en svikamyllan er sögð vera áþekk þeirri sem bandaríski fjársvikarinn Bernard Maddoff setti á laggirnar og fékk langan dóm fyrir.

Íslendingurinn, Sveinn Friðfinnsson, sem virðist vera búsettur á Kýpur í dag, er sagður hafa lofað fólki gríðarlegri ávöxtun á sparifé ef keypt voru hlutabréf í fyrirtækinu Investa Select Offshore sem stundaði gjaldeyrisviðskipti. Sænska blaðið segir að fyrirtækinu hafi tekist að fá þúsundir Svía til þess að taka þátt í ævintýrinu og fárfesta fyrir hundruð milljóna sænskra króna.

Á tímabili virtist allt leika í lyndi og gátu fjárfestarnir fylgst með gríðarlega góðu gengi sínu á heimasíðunni zierra.net. Enginn hefur þó enn fengið nokkurn hagnað af fjárfestingu sinni og óttast menn að Sveinn og félagar hans hafi einfaldlega stungið af með sparifé fólksins án þess að hafa nokkurn tíma stundað gjaldeyrisviðskipti af neinu ráði.

Sænska fjármálaeftirlitið heldur því fram að um svikamyllu hafi verið að ræða og setti fyrirtækið á sérstakan válista og segir í frétt á Dagens Industri að málið sé nú til rannsóknar hjá saksóknaranum í Borås. Svo virðist sem maðurinn hafi fyrst lagt snörur sínar fyrir sænska sparifjárleigendur árið 2004 og var hann með skrifstofu í landinu til ársins 2007. Síðan þá hefur lítið til hans spurst og var greint frá því á heimasíðu zierra.net í ágúst að sökum mikilla sviptinga á fjármálamarkaði heimsins neyddist fyrirtækið til þess að hætta starfsemi. Eftir sitja þúsundir sænskra sparifjáreigenda með sárt ennið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sveinn Friðfinnsson kemst í fréttirnar hér á landi því í desember 2005 sagði DV frá hópi fólks sem vildi hafa uppi á Sveini sem þá virðist hafa stundað svipaða iðju í Kaupmannahöfn.

Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×