Lífið

Missti vinnuna og opnaði líkamsræktarstöð

KOmin í draumastarfið Elísabet Tanía opnaði Studio Fitt eftir að hafa misst vinnuna í kjölfar kreppunnar. Hún segist nú vera komin í draumastarfið.
Fréttablaðið/anton
KOmin í draumastarfið Elísabet Tanía opnaði Studio Fitt eftir að hafa misst vinnuna í kjölfar kreppunnar. Hún segist nú vera komin í draumastarfið. Fréttablaðið/anton

„Mér og samstarfskonu minni datt þetta í hug þegar við vorum að vinna saman því við höfðum báðar mikinn áhuga á líkamsrækt. Þegar kreppan skall á misstum við báðar vinnuna og í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima ákváðum við að opna okkar eigin líkamsræktar­stöð. Við opnuðum Studio Fitt saman í janúar en hin flutti út í sumar og nú er ég ein eftir ásamt tveimur þjálfurum,“ segir Elísabet Tanía Smáradóttir, viðskiptafræðingur og Fit Pilates kennari sem rekur líkamsræktarstöðina Studio Fitt við Seljaveg. Stöðin býður meðal annars upp á tíma í Fit Pilates, boot camp fyrir konur og jóga, svo fátt eitt sé nefnt.

Elísabet Tanía tók á leigu húsið á Seljavegi sem áður hýsti Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og fékk aðstoð frá vinum og vandamönnum við endurbætur á húsnæðinu. „Við reyndum að gera þetta á eins ódýran máta og við mögulega gátum og fengum því aðstoð frá vinum og vandamönnum við að koma húsnæðinu í stand. Við þurftum að rífa niður nokkra veggi og byggja aðra, pússa gólfin og koma upp betri sturtu­aðstöðu og í kjölfarið þykir manni enn vænna um staðinn.“ Hún kennir daglega í Studio Fitt en hefur fengið tvo aðra þjálfara til liðs við sig.

„Ég kenni ekki morgun- eða kvöldtímana því ég á lítið barn sem þarf svolítið á mömmu sinni að halda.“

Aðspurð segist Elísabet Tanía hafa æft ýmsar íþróttir frá barnsaldri og segir hún íþróttaiðkun vera henni jafn nauðsynlega og súrefni. „Í gegnum árin hef ég lesið nánast allt sem viðkemur næringarfræði, líkamsrækt og heilsu. Þess utan hef ég tekið ýmis þjálfararéttindi, þannig að ég er án efa komin í draumastarfið,“ segir hún og hlær.

- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.