Formúla 1

Ferrari hættir ef FIA gefur sig ekki

Stefano Domenicali framkvæmdarstjóri Ferrari hefur í nógu að snúast þessa dagana. Stjórn Ferrari vill hætta í Formúlu 1 ef reglur FIA breytast ekki fyrir næst ár.
Stefano Domenicali framkvæmdarstjóri Ferrari hefur í nógu að snúast þessa dagana. Stjórn Ferrari vill hætta í Formúlu 1 ef reglur FIA breytast ekki fyrir næst ár.
Stjórn Ferrari kom saman í dag og ræddi reglubreytingar sem FIA hyggst taka í notkun á næsta ári sem takmarkar mjög möguleika liða til að þróa bíla sína og verja því fjármagni sem bílaframleiðendur vilja kosta til.

FIA vill reglur sem verða til þess að ný lið geta komið inn í Formúlu 1 og kostað til 40 miljónunum pund, en stórliðin í dag eru að verja allt að 300 miljónum punda á ári.

"Ef þessum tillögum verður ekki breytt, þá mun Ferrari ekki taka þátt í Formúlu 1 á næsta ári", segir m.a. í yfirlýsingu frá Ferrari í dag.

"Ferrari hefur tekið þátt í Formúlu 1 í 60 ár, en ef FIA neitar að endurskoða afstöðu sína mun Ferrari leita leiða til að taka þátt í öðrum mótaröðum árið 2010. Ferrari lýsir líka yfir vonbrigðum með einstrengingslega ákvarðanatöku FIA, sem hefur ekki leitað samstarfs við Formúlu 1 lið í þessu máli:"

Önnur lið eru líka á skjön við FIA. Red Bull, Torro Rosso, Renault, BMW og McLaren eru ekki sátt við framgang mála og ljóst að málsaðilar þurfa að funda. Sagt er að Max Mosley forseti FIA og Luca Montezemolo framkvæmdarstjóri Ferrari muni hittast í vikunni. Keppnislið í Formúlu 1 þurfa að sækja um þátttöku árið 2010 í síðasta lagi 29. maí n.k.

Sjá yfirlýsingu Ferrari






Fleiri fréttir

Sjá meira


×