Felipe Massa hjá Ferrari telur allar líkur á því að Jenson Button og Brawn liðið verði heimsmeistari í Formúlu 1 í ár. Hann hefur unnið mótið í Tyrklandi þrjú ár í röð, en keppt er í Istanbúl um helgina.
"Ég gefst ekki upp þótt á mót blási og mun berjast til síðustu beygju, síðasta mótsins. En reynslan segir mér að Brawn liðið landi titlunum í ár. Titilslagnum er lokið í mínum huga", sagði Massa við blaðamenn í Istanbúl í dag.
"Red Bull menn eiga möguleika, en Ferrari er hvergi nærri toppnum. Við munum þó berjast til sigurs í öllum mótum og reyna vinna eins mörg og við getum. Tölfræðilega eigum við sjéns, en ég hef enga trú á að Brawn missi flugið. Ég tel að við séum með næsta besta bílinn og ég held að mótið í Istanbúl verði mjög spennandi. Brawn og Red Bull verða okkar helstu keppinautar og ég hlakka til að berjast um sigur", sagði Massa.
Fjallið er um mótshaldið í Tyrklandi um helgina í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport kl. 20.00 í kvöld.
Massa spaír Button meistaratitlinum
