Í ljósi þess að Felipe Massa keppir ekki vegna þess að hann höfuðkúpubrotnaði í tímatökunni í gær, þá hefur staða manna breyst á ráslínunni.
Massa hafði landað tíunda sætin á ráslínu og varaökumaður Ferrari fær ekki að taka hans stað þar sem Massa hóf ekki lokaumferðina eins og reglur segja til um. Sebastian Buemi á Torro Rosso færist því upp um sæti og allir sem á eftir fylgja.
Massa dvelur á gjörgæslu á AEK spítalanum í Búdapest og líðan hans sögð eftir atvikum góð. Hann skarst í andliti og höfuðkúpubrotnaði þegar 1 kg þungur gormur úr bíl Rubens Barrichello skall á hjálmi hans.
Þykir með ólíkindum að það hafi gerst, þar sem gormurinn losnaði fjórum sekúndum áður af afturdempara á bíl Barrichello. Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn segir að rannsakað verði hvernig gormurinn gat losnað á þennan hátt og skotist eftir brautinni.
Kappaksturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11:30 í dag og þá verður farið yfir það sem gerðist í óhappinu.