Handbolti

Einar Jónsson þjálfar Framstelpurnar áfram

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram.
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram. Mynd/Anton

Einar Jónsson hefur náð samkomulagi við Fram um að þjálfa áfram meistaraflokk kvenna hjá félaginu en undir stjórn Einars hefur Framliðið unnið silfur á Íslandsmótinu undanfarin tvö ár.

Einar hefur skrifað undir samning til ársins 2011 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá handknattleiksdeild Fram.

Í tilkynningunni segir meðal annars: „Einar er bjartsýnn fyrir næsta leiktímabil, enda með góðan leikmannahóp í höndunum. Hann ætlar sér stóra hluti með liðið og markmiðið að sjálfösgðu að vinna titla."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×