Innlent

Blaðamannafélagið harmar uppsagnir á Morgunblaðinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Um 30 manns var sagt upp störfum á Morgunblaðinu í dag. Mynd/ Hörður.
Um 30 manns var sagt upp störfum á Morgunblaðinu í dag. Mynd/ Hörður.
Blaðamannafélag Íslands harmar fjöldauppsagnir á Morgunblaðinu í nýrri ályktun sem félagið sendi frá sér undir kvöld. Þeir sem lengst hafi unnið hjá blaðinu og sagt var upp störfum í dag hafi verið þar í um fjörutíu ár. Á sama tíma og ritstjórum blaðsins er fjölgað í tvo sé gífurlegri reynslu og þekkingu nærri tuttugu blaðamanna kastað á glæ í nafni hagræðingar.

„Blaðamannafélagið telur þá ákvörðun eigenda blaðsins að ráða umdeildan stjórnmálamann sem ritstjóra Morgunblaðsins rýra trúverðugleika blaðsins. Afskipti Davíðs Oddssonar af stjórnmálum og störf hans sem Seðlabankastjóri tengja hann efnahagshruninu síðasta haust með slíkum hætti að blaðamenn geta ekki við unað. Blaðamannafélagið óttast um starfsöryggi og starfsskilyrði þeirra félagsmanna sem enn starfa hjá blaðinu," segir í ályktuninni.

Þá lýsir Blaðamannafélagið jafnframt þungum áhyggjum af stöðu fjölmiðla á Íslandi, enda hafi um hundrað blaðamönnum verið sagt upp störfum síðustu misseri. Þá hafi harkalegur niðurskurður á ritstjórnum þrengt mjög að faglegri og frjálsri blaðamennsku. Þetta sé sérstaklega hættulegt nú þegar aldrei hafi riðið jafn mikið á og nú að standa vörð um lýðræði hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×