Nico Rosberg frá Þýsklandi náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Istanbúl í morgun. Hann stal besta tíma á síðustu mínútu æfingarinnar af Lewis Hamilton á McLaren. Var munurinn á milli þeirra 0.311 sekúndur.
Jenson Button sem hefur forystu í stigamótinu var með ellefta besta tíma, en ljóst er að keppinautar Brawn liðsins og Button verða að slá þeim við í móti helgarinnar. Annars stingur Button hreinlega af, en hann er með 16 stiga forskot á Rubens Barrichello sem einnig ekur fyrir Brawn.
Sebastian Vettel er þeim næstur og sagði á blaðamannafundi að Red Bull yrði að svara fyrir sig um helgina.
"Við gerðum mistök varðandi þjónustuáælanir í tveimur síðustu mótum og núna verðum við að standa okkur í stykkinu. Annars týnum við Button", sagði Vettel.
Felipe Massa segir nánast vonlaust að hann geti slegist við Brawn menn, en hann hefur unnið mótið þrsivar í röð. Hann segist þó stefna á sigur í öllum mótum, en telur að stigaforskot Buttons sé illviðráðanlegt, enda er Button með 51 stig, en Massa 8.
Sýnt verður frá æfingum í Istanbúl í dag á Stöð 2 Sport kl. 21.00 í kvöld.
SJá brautarlýsingu og tölfræði